Jæja, ég er búinn að vera sjúklega lélegur að blogga. Ástæður = Herranótt, stúdentspróf og almenn leti. Ég hendi kannski inn bloggi um Hot Tub Time Machine, Kóngaveg eða THE ENGLISH PATIENT... Ókei. En núna ætla ég að blogga um námskeiðið.
- Hvað tókst vel og hvað mætti betur fara?
Það sem mér fannst kannski bætanlegast er i) Aginn í tímum. Auðvitað er þetta bara valfag og við erum öll í 6. bekk en athyglin mætti alveg vera meiri og þó svo að við höfum valið að vera í þessum tímum þá ætti alveg að vera agi í tímunum. Svo var líka skrítið hvað við fórum seint í kvikmyndasöguna. Mér fyndist að hún ætti að vera undirstaðan - einhvernveginn tvinnuð inn í námskeiðið og talað um tæknileg atriði inná milli. Ég veit það ekki.
- Hvaða hluti námskeiðsins var skemmtilegastur?
- Hvaða hluta lærðuð þið mest af eða nýttist ykkur best?
Oft var líka ótrúlega skemmtilegt að hitta leikstjórana. Þeir voru reyndar mjög mismunandi, en Ragnar Bragason stendur klárlega uppúr þar!
- Hvaða hluta þarf að breyta eða henda alveg út?
- Hvers söknuðuð þið - hverju þarf að bæta við?
-----
Að lokum, já, það mætti alveg bæta við tónlistarmyndbandi/auglýsingu... Þessvegna væri hægt að leyfa hópunum að taka upp á meðan hinir eru í bíótíma? Er það kannski pæling? Hver hópur yrði settur á einn miðvikudag (þá gætirðu líka haft hópa sem koma úr báðum bekkjunum) og fengi 2 tíma til að taka upp auglýsinguna/tónlistarmyndbandið (eða gætu haldið áfram eftir skóla, en með þessu ertu allavegana búinn að setja hópinn af stað). Þá myndirðu sjá til þess að verkefnið yrði gert og síðan myndi hópurinn klippa heima. Pæling?
Svo er ég líka pínu efins með blogg-pælinguna... Mér finnst hún sniðug og hún hljómar vel, en fólki virðist bara vera ALVEG sama um bloggið. Það eru örfáir sem blogga yfir höfuð, og ég veit hreinlega ekki hvað væri hægt að gera í staðinn... Kannski minnka kröfurnar, svo þær séu yfirstíganlegar? Hvetja til umræðna á Facebook frekar en að láta alla fá sér blogg? (og gefa fólki svo bara stig útfrá kommentum) ég veit ekki!
En ég er virkilega fylginn byltingarkenndu pælingunni minni: Að einn hópur í einu fái kameruna og fái að taka upp á meðan allir hinir eru í bíótíma, þá myndi hver nemandi sjá einni mynd færri og í staðinn myndirðu auka virkni í kvikmyndagerðinni.
-Gummi